spot_img
HomeFréttirÍsland mætir Danmörku kl. 14:00 í öðrum leik Norðurlandamótsins

Ísland mætir Danmörku kl. 14:00 í öðrum leik Norðurlandamótsins

Undir 18 ára stúlknalið Íslands leikur í dag sinn annan leik á Norðurlandamótinu í Södertalje í Svíþjóð. Ísland leikur fimm leiki á mótinu, gegn Svíþjóð, Finnlandi, Danmörku, Noregi og Eistlandi.

Í gær lagði liðið Noreg nokkuð örugglega í fyrsta leik sínum á mótinu 62-90.

Í öðrum leik mótsins mætir Ísland liði Danmerkur, en leikurinn verður bæði í beinni útsendingu og lifandi tölfræði kl. 14:00.

Hérna er heimasíða mótsins með dagskrá, lifandi tölfræði og öðrum upplýsingum

Hérna verður hægt að horfa á leiki mótsins í beinni útsendingu

Hérna má sjá lið Íslands á mótinu

x

Umfjöllun Körfunnar um íslensku landsliðin er kostuð af Lykil

Fréttir
- Auglýsing -