Barry Buccaneers sigruðu Alabama Huntsville 87-83 í svæðisúrslitum 2. deildar NCAA boltans. Með því náðu þeir að komast beint í 8 liða úrslit landskeppninnar þar sem þeir mæta Lincoln Memorial eftir viku.
Elvar Már Friðriksson var stigahæstur í liði Buccaneers ásamt Yunio Barrueta með 21 stig hvor. Elvar bætti við 5 stoðsendingum og 1 stolnum bolta. Mikilvægastar voru þó þriggja stiga körfurnar þrjár sem Elvar setti hverja eftir aðra þegar um 2 mínútur voru eftir af leiknum til að koma Bucs 5 stigum yfir 84-79.
Þetta er besti árangur Barry háskólans frá upphafi.
Næsti leikur Barry Bucs verður gegn Lincoln Memorial, 23. mars nk. kl. 17:00 að íslenskum tíma.