Brynjar Þór Björnsson var ómyrkur í máli eftir sigur KR gegn Grindavík í kvöld. Honum fannst Grindvíkingar hafa litla trú á verkefninu í kvöld og að hans menn hafi verið með þennan leik megnið af tímanum. Brynjari fannst tuð og væl í stuðningsmönnum Grindavíkur til skammar og sagði það óvenjulegt að spila í Grindavík.