spot_img
HomeFréttirBúast má við mínútum frá Bonneau í kvöld

Búast má við mínútum frá Bonneau í kvöld

Fréttir sem jafnvel sveitungar í norðurlandi eystri hafa beðið eftir eru loksins að verða að veruleika.  Stefan Bonneau má allt eins búast við því að fá mínútur í kvöld í fyrsta skipti síðan hann sleit hásin í september sl.  Teitur Örlygsson aðstoðarþjálfari Njarðvíkinga staðfesti þetta í snörpu samtali við Karfan.is  "Oddur bað hann um smá hjálp og Stefan fannst gott að heyra það. Ég geri ráð fyrir því að hann hvíli Odd í kvöld þegar þurfa þykir." sagði Teitur kíminn í samtali. 

 

Njarðvík og Stjarnan heyja sína aðra orystu í einvígi liðanna í kvöld í Ljónagryfjunni og hefjast herlegheitin kl 19:15

 

Mynd: Kári Jónsson í stúkusæti að fylgjast með troðslu Bonneau

Fréttir
- Auglýsing -