Barry Buccaneers og Elvar Már Friðriksson náðu ekki að halda sigurgöngu sinni áfram í 8 liða úrslitum 2. deildar NCAA háskólaboltans í dag en þeir töpuðu fyrir besta liði deildarinnar, Lincoln Memorial 75-93.
Barry byrjuðu frábærlega í leiknum og náðu mest 11 stiga forystu í fyrri hálfleik en fimm mínútur eru eftir af honum fer besti maður Barry, Yunio Barruetta útaf. Þar að auki kemur leikmaður að nafni Gerel Simmons aftur inn á fyrir Lincoln og sá lét finna fyrir sér strax frá þeirri mínútu.
Lincoln héldu Barry stigalausum það sem eftir lifði hálfleiksins og náðu að komast 4 stigum yfir áður en flautað var til hálfleiks.
Barry spiluðu vel fyrri hluta seinni hálfleiks og náðu að halda muninum undir 10 stigum mest allan tímann þar til um 10 mínútur voru eftir af leiknum. Þá upphófst annar stigalaus kafli hjá Barry í rúmar fjórar mínútur á meðan Lincoln jók muninn í alls 20 stig.
Barry sáu aldrei til sólar eftir það og þurftu að sætta sig við 18 stiga tap. Elvar skoraði 10 stig og gaf 5 stoðsendingar.
Barry luku tímabilinu með 26 sigurleiki og svæðismeistaratitil sem er besti árangur liðsins frá upphafi.