Eftir nokkuð erfitt kvöld hjá Tindastól í gærkvöldi héldu leikmenn líkast til að kvöldið yrði ekki svartara. En þeir Pétur Birgisson og Viðar Ágústsson ásamt systur Viðars og unnustu lentu í bílveltu á leiðinni heim í nótt. "Bíllinn er gjörónýtur og það er í raun ótrúlegt hvað við sluppum vel því þetta leit ekkert svakalega vel út" sagði Pétur í samtali við Karfan.is nú rétt í þessu.
"Systir Viðars var að keyra og svo var unnusta hans líka með. Hún fékk höfuðhögg en annars sluppu allir alveg ótrúlega vel. Við vorum bara heppnir. Þetta var hálka á veginum sem við bara gerðum okkur ekki grein fyrir og það var valdurinn" bætti Pétur við. Ekki var annað að heyra en þeir félagar hafi fengið smá sjokk en verða tilbúnir í næsta leik.