spot_img
HomeBónus deildinBónus deild kvennaKatla Rún í Keflavík til 2025

Katla Rún í Keflavík til 2025

Katla Rún Garðarsdóttir hefur framlengt samningi sínum við deildarmeistara Keflavíkur í Subway deild kvenna til ársins 2025.

Katla Rún, sem er uppalin Keflavíkurmær, hefur verið lykilleikmaður í liði Keflavíkur undanfarin ár. “Ég er mjög spennt fyrir komandi tímabili. Hópurinn er bara að styrkjast frá því í fyrra og við erum allar reynslunni ríkari og með lið sem er fullt af hæfileikum” Katla segir markmið vetrarins klárlega vera að gera betur en í fyrra þegar liðið endaði í 2. sæti bæði í Íslandsmótinu og bikarnum. “Við ætlum okkur stóra hluti og tilhlökkunin er mikil, við getum ekki beðið eftir því að byrja þetta.”

Fréttir
- Auglýsing -