Lykilmaður fjórða leiks Stjörnunnar og Njarðvíkur í 8 liða úrslitum Domino's deildar karla er að mati Karfan.is Tómas Heiðar Tómasson, leikmaður Stjörnunnar. Tómas Heiðar var frábær á báðum endum vallarins með 20 stig, 5 fráköst og 4 stoðsendingar, auk þess að spila afburðavörn á Hauk Helga hjá Njarðvík.