Fannar Helgason, þjálfari ÍA spjallaði aðeins við Karfan.is eftir fyrsta leik þeirra gegn Fjölni í undanúrslitum 1. deildar karla í gærkvöldi. Fannar sagði heimamenn hafa fengið að spila fast og sem hafi komið hans mönnum í koll á ögurstundu í lok leiks.