Karfan.is hefur valið Haiden Palmer, leikmann Snæfells, Lykilmann annars leiks Snæfells og Vals í undanúrslitum Domino's deildar kvenna. Palmer lék á alls oddi í öllum leiknum en var alls ráðandi í framlengingunni þar sem Snæfell sigldi bátnum heim. Palmer skoraði 41 stig, tók 20 fráköst, gaf 6 stoðsendingar og stal 9 boltum í leiknum. Tölfræði sem gaf henni hvorki meira né minna en 57 framlagspunkta en það er hæsta framlagsgildi vetrarins og bætir met Whitney Frazier um 2 stig.