Karfan.is hefur valið Whitney Frazier, leikmann Grindavíkur Lykilmann annars leiks Hauka og Grindavíkur í undanúrslitum Domino's deildar kvenna. Fraizer var illviðráðanleg í kvöld þegar Grindavík kjöldró deildarmeistara Hauka. Á blokkinni skoraði hún nánast að vild og var að spila glimmrandi góða vörn á köflum í leiknum. Frazier lauk leik með 24 stig, 14 fráköst og 5 stoðsendingar.