Undanúrslitaeinvígi Hauka og Tindastóls hófst í kvöld með stórskemmtilegum leik. Varnir beggja liða voru í aðalhlutverki eins og bæði Ívar Ásgrímsson og Jose Costa þjálfarar liðanna töluðu um í viðtali eftir leikinn.
Einnig náðum við tali á þeim Helga Rafni leikmanni Tindastóls og Hauki Óskarssyni leikmanni Hauka sem tók nokkuð undir það að Haukar væru að gleymast í umræðunni um mögulega íslandsmeistara.
Viðtöl frá Karfan.is við þessa herramenn eftir leik má sjá hér að neðan:
Viðtöl / Ólafur Þór Jónsson
Mynd / Axel Finnur Gylfason