Helgi Már Magnússon leikmaður KR var að vonum svekktur með niðurstöðu kvöldsins eftir tap í Njarðvík. Helgi sagði sína menn hafa verið að leika fínan körfuknattleik og átt að klára dæmið en hrósaði um leið Njarðvíkingum fyrir frábæra endurkomu. Micheal Craion var meira og minna í villuvandræðum í leiknum og sagði Helgi að það hafi vissulega haft áhrif og að Craion hafi fyrir vikið ekki getað beitt sér að fullu.