Karfan.is hefur útnefnt Hauk Helga Pálsson Lykilmann annars leiks KR og Njarðvíkur í undanúrslitum Domino's deildar karla. Haukur, ásam Loga Gunnarssyni, var burðarás Njarðvíkurliðsins í sigri þess á KR í kvöld en hann lauk leik með að skora afar mikilvæga körfu sem tryggði liðinu fyrsta sigur á heimavelli í ansi langan tíma.