Ívar Ásgrímsson þjálfari Hauka var að vonum sáttur við sigur sinna manna í kvöld en var þó fúll með að hafa ekki fengið neitt þegar leikmaður Tindastóls gaf Hjálmari Stefánssyni olnbogaskot í fyrri hálfleik. Hjálmar spilaði ekkert í seinni hálfleik og staðfesti Ívar að hann væri með skurð á andliti og hugsanlega nefbrotinn.
Ívar talaði einnig um stemmninguna í liðinu og möguleikana í næsta leik. Einnig ræddum við við Pétur Rúnar Birgisson en það var ekki bilbug á honum að finna þrátt fyrir tap í dag.
Viðtöl / Ólafur Þór Jónsson