Lykilmaður þriðja leiks KR og Njarðvíkur í undanúrslitum Domino's deildar karla er að mati Karfan.is Pavel Ermolinskij, leikmaður KR. Pavel átti erfitt uppdráttar í leiknum hvað stigaskor varðar en að öðru leyti stýrði hann sóknarleik KR-ingar með stakri prýði og var hæstur í framlagi ásamt Helga Má með 19 stig. Pavel tók 14 fráköst og gaf 11 stoðsendingar í leiknum.