spot_img
HomeBónus deildinBónus deild karlaMagnús í Keflavík til 2025

Magnús í Keflavík til 2025

Keflavík hefur framlengt samningi sínum við bakvörðinn Magnús Pétursson til ársins 2025.

Magnús er að upplagi úr Keflavík, en ásamt þeim hefur hann einnig leikið fyrir meistaraflokk Þróttar í Vogum, sem á síðustu leiktíð tryggðu sér sæti í fyrstu deildinni. Magnús kvaðst vera afar spenntur fyrir komandi tímabili í samtali við Keflavík FB. “Ég er þess fullviss að nýr þjálfari á eftir að koma með innspýtingu inn í okkar lið og spila skemmtilegan bolta. Framundan er krefjandi verkefni sem ég er þakklátur fyrir að vera hluti af og ætla mér stóra hluti í vetur.”

Fréttir
- Auglýsing -