KR-ingar hreinlega völtuðu yfir Njarðvíkinga í kvöld í DHL-höllinni, 92-64 í oddaleik um sæti í úrslitaviðureigninni gegn Haukum. Njarðvíkingar byrjuðu vel en KR settu skömmu síðar allt í gang og smelltu niður öllu sem þeir hentu upp. KR-ingar luku leik með 53% eða 16/30 í þriggja stiga skotum. Njarðvíkingar áttu engin svör og úrslitin voru svo gott sem ráðin á fyrstu mínútum seinni hálfleiks.
Úrvalsdeild karla, Úrslitakeppni
KR-Njarðvík 92-64 (22-17, 25-16, 29-12, 16-19)
KR: Michael Craion 20/4 fráköst, Brynjar Þór Björnsson 16/7 fráköst, Darri Hilmarsson 13/8 fráköst, Helgi Már Magnússon 12/7 fráköst, Snorri Hrafnkelsson 8, Þórir Guðmundur Þorbjarnarsson 7, Björn Kristjánsson 6/6 fráköst, Pavel Ermolinskij 6/5 fráköst/8 stoðsendingar, Vilhjálmur Kári Jensson 3, Jón Hrafn Baldvinsson 1, Ólafur Þorri Sigurjónsson 0, Arnór Hermannsson 0.
Njarðvík: Jeremy Martez Atkinson 22/14 fráköst, Haukur Helgi Pálsson 13/7 fráköst, Ólafur Helgi Jónsson 10, Logi Gunnarsson 8, Oddur Rúnar Kristjánsson 5/4 fráköst/5 stoðsendingar, Snjólfur Marel Stefánsson 2, Maciej Stanislav Baginski 2, Adam Eiður Ásgeirsson 2, Gunnlaugur Sveinn Hafsteinsson 0, Jón Arnór Sverrisson 0, Oddur Birnir Pétursson 0, Hjörtur Hrafn Einarsson 0.
Dómarar:
Viðureign: 3-2