spot_img
HomeFréttirJóhann Þór áfram með Grindvíkinga

Jóhann Þór áfram með Grindvíkinga

Grindavíkingar hafa staðfest að samningur við Jóhann Þór Ólafsson þjálfara liðsins verður virtur og mun hann því koma til með að þjálfa liðið áfram á komandi tímabili.  Grindvíkingar gengu í gegnum nokkuð erfitt tímabil þar sem liðið varð fyrir þó nokkrum skakkaföllum sem endaði svo í DHL-höllinni þar sem þeim var sópað í fríið.   Óvitað er hvort Björn Steinar Brynjólfsson haldi áfram sem aðstoðarþjálfari en það er í höndum Jóhanns þjálfara að ákveða það. 

Fréttir
- Auglýsing -