spot_img
HomeFréttirHelena verður ekki með Haukum í kvöld

Helena verður ekki með Haukum í kvöld

Deildarmeistarar Hauka leika án Helenu Sverrisdóttur í kvöld þegar Snæfell og Haukar mætast í sínum öðrum leik í úrslitum Domino´s-deildar kvenna. Staðan í einvíginu er 1-0 Hauka í vil en viðureign kvöldsins fer fram í Stykkishólmi.

Helena meiddist í fyrsta leiknum en var búin að leggja hressilega til liðsins áður en hún varð að víkja af velli vegna meiðsla í kálfa. 

 

„Hún mun halda áfram meðferð og vonandi næst að gera hana klára fyrir fimmtudaginn,“ sagði Ingvar Þór Guðjónsson þjálfari Haukaliðsins við Karfan.is rétt í þessu. 

 

Hauka bíður því ærinn starfi í kvöld án Helenu en Hafnarfjarðarkonur töpuðu báðum deildarleikjunum sínum í Hólminum í deildarkeppninni.

Fréttir
- Auglýsing -