„Með endurráðningu Loga kristallast hið eina sanna Njarðvikurhjarta. Hann hefði getað sótt í stærri samning annars staðar en kaus að gera það ekki. Við höfum verið nálægt stærsta sviðinu í tvígang, nánast þefað af gullinu. Til að ná gullinu til okkar er nauðsynlegt að hafa Loga um borð. Hann er verðugur stýrimaður Njardvikurliðsins med risavaxið grænt hjarta og um leið sú góða fyrirmynd sem við viljum hafa innan okkar raða. Ég er afar sáttur við þennan víking.“ Segir Gunnar Örlygsson í tilefni þess að í kvöld kvittaði Logi Gunnarsson undir framlengingu á samningi sínum við Njarðvíkinga.
Logi hefur síðustu ár verið fyrirliði liðsins og verið liðinu dýrmætur á ögurstundum og fórnað miklu fyrir hina grænklæddu eins og líðandi tímabil þeirra sýndi og sannaði. Vissulega gleði tíðindi hjá þeim Njarðvíkingum að festa niður einn af sínum sterkasta stólpa.