spot_img
HomeFréttirKári ekki með Haukum í kvöld

Kári ekki með Haukum í kvöld

Kári Jónsson verður ekki með Haukum í kvöld þegar liðið mætir KR í annað skiptið í úrslitum Domino's deildar karla. Kári meiddist snemma í fyrsta leik liðanna en hann lenti illa á fætinum og kom ekki meira við sögu. 

 

Samkvæmt heimildum Karfan.is hafa rannsóknir leitt í ljós að flísast hafði úr beini í ristinni á Kára og miðað við þær fréttir verður að teljast ólíklegt að hann verði meira með liðinu í úrslitunum. Staðan verður þó aftur tekin á Kára fyrir þriðja leikinn í seríunni en eins og sakir standa leiðir KR 1-0.

 

Haukar taka á móti KR í öðrum leik liðanna í kvöld kl. 18:30.

Fréttir
- Auglýsing -