Njarðvíkingar sitja ekki auðum höndum og hafa nú samið við yngri kynslóð leikmanna sinna sem hafa ýmist verið að spila með liðinu eða þá að banka á dyrnar hjá meistaraflokki liðsins. Í dag kvittuðu 6 leikmenn undir samning við liðið og unnið er hörðum höndum að klára samninga við restina af leikmönnum liðsins.
Þeir leikmenn sem skrifuðu undir í dag eru Gunnlaugur Hafsteinsson, Adam Eiður Ásgeirsson, Snjólfur Marel Stefánsson, Jón Arnór Sverrisson, Hermann Ingi Harðarson og Gabríel Sindri Möller. Við tilefnið hélt Daníel Guðni Guðmundsson tölu yfir leikmönnum og öðrum viðstöddum og ítrekaði þar að þegar hann myndi hefja störf sætu allir leikmenn við sama borð og það væri algerlega í þeirra höndum hver myndi ná lengst.