Denise Hayden Palmer var í kvöld valin besti leikmaður úrslitakeppninar og vel að þeim titli komin stúlkan. Hún átti frábæra leiki í heild sinni og í kvöld skilaði hún 21 stigi og 12 fráköstum. Palmer sagði að það þurfti stórt Snæfellshjarta til að taka sigur á útivelli og það hafðist.