San Antonio sendu skýr skilaboð strax á fyrsta degi envígis síns gegn Oklahoma og rassskelltu gesti sína með 22 stigum þegar liðin mættust í fyrsta skipti í gærkvöldi. 124:92 loka staða leiksins. Lamarcus Aldridge fór fyrir Spurs og setti niður 38 stig en hjá Thunder var þeirra stigahæsti maður nokkuð óvænt Sergei Ibaka með 19 stig.
Í dag etja kappi í oddaleikjum lið Charlotte og Miami annarsvegar og svo lið Indiana og Toronto. Leikirnir fara fram á heimavelli Miami og Toronto.