Þórsarar úr Þorlákshöfn hafa bundið niður þrjá af lykilmönnum sínum fyrir komandi tíma en þeir Emil Karle, Þorsteinn Már og Ragnar Bragason skrifuðu undir framlengingu á samningi sínum við félagið nú í dag. Emil og Þorsteinn framlengdu til tveggja ára og Ragnar um eitt ár til viðbótar í Þorlákshöfninni. Ljóst að Þórsarar ætla að byggja á fínum árangri félagsins í vetur og toppa það á næsta ári því í vikunni bættu þeir við sig Maceij Baginski.