spot_img
HomeFréttirFannar og Ingi Þór höfðu góð áhrif á Valencia

Fannar og Ingi Þór höfðu góð áhrif á Valencia

Valencia gerðu sér lítið fyrir og sigruðu topplið Barcelona um helgina með 10 stigum 75:65.  Jón Arnór átti prýðis leik þegar hann gerði 7 stig en á myndinni má sjá okkar mann setja tvö stig í "grillið" á hinum magnað bakverði Barcelona, Carlos Arroyo.  Valencia hjó þar með á forskot Barcelona á toppi deildarinnar og eru nú aðeins einum sigri frá toppnum, líkt og Real Madrid. 

 

Á leiknum um helgina voru heiðursgestir frá Íslandi Jóni til stuðnings, þeir Fannar Ólafsson spekúlant úr Körfuboltakvöldi og Ingi Þór Steinþórsson þjálfari Snæfell.  Augljóslega hafa áhrif þeirra svifið yfir salnum í Valencia í gær þar sem sigur hafðist gegn stórliði Barcelona. 

Fréttir
- Auglýsing -