Samkvæmt heimasíðu Keflvíkinga hafa þeir suður með sjó endurnýjað samninga við þrjá leikmenn liðsins. Á heimasíðu Keflavíkur segir að þeir Magnús Már Traustason, Andrés Kristleifsson og Reggie Dupree hafi allir endurnýjað samninga sína til tveggja ára. Allir þessir leikmenn voru stórir póstar í liðinu á síðasta ári og þeir Magnús og Reggie báðir að öllu jöfnu í byrjunarliði liðsins og því afar góðar fréttir fyrir þá Keflvíkinga.