spot_img
HomeFréttirHaukur áfram í Njarðvík

Haukur áfram í Njarðvík

Haukur Helgi Pálsson hefur undirritað samning við KKD Njarðvíkur um að spila með liðinu á næsta keppnistímabili 2016/2017. Þetta kemur fram á Facebook-síðu Njarðvíkinga.

Í færslu Njarðvíkinga segir einnig:

Klásúla er í samningi sem tryggir Hauki að leita á erlend mið ef svo ber undir að ákjósanlegt tilboð berist frá erlendu félagi. Haukur Helgi var valinn besti leikmaður Dominos deildar karla á sl. tímabili.

Það er því ekki ofsögum sagt að stjórn KKD Njarðvíkur sé himinlifandi með samninginn við þennan frábæra leikmann. "Haukur Helgi var mjög góður sl. tímabil þó svo ýmislegt hafi gengið á. Haukur hafði t.a.m. aldrei áður spilað í efstu deild á Íslandi. Ég hins vegar tel að Haukur muni vera enn betri fyrir Njarðvíkinga á næsta tímabili. Nú þekkir hann deildina betur og veit að hverju hann gengur.Okkur er að takast að halda kjarnanum í liðinu áfram og vonandi tekst okkur að landa 1-2 góðum leikmönnum til viðbótar.Nú vantar okkur miðherjann í liðið en ljóst er að leikstjórnandinn Stefan Bonneau verður orðinn leikfær aftur í haust eða u.þ.b. sem alvaran hefst.Ef lokataflið heppnast vel hjá okkur, þá verðum við með lið sem á erindi meðal þeirra allra bestu á Íslandi. " sagði Gunnar Örlygsson, formadur KKD UMFN

Fréttir
- Auglýsing -