Selfoss varð í vikunni meistari 2. deildar 12. flokks karla með sigri gegn Skallagrím í úrslitaleik á Meistaravöllum, 88-72. Leikurinn var jafn í fyrri hálfleik, en í þeim seinni náðu Selfyssingar yfirhöndinni og höfðu að lokum 16 stiga sigur. Birkir Hrafn Eyþórsson var valinn maður leiksins, en hann skilaði 18 stigum, 15 fráköstum, 3 stoðsendingum og 2 stolnum boltum.
Hér fyrir ofan má sjá mynd af meistaraliðinu ásamt þjálfara sínum Bjarna Skarphéðinssyni.
Mynd / KKÍ