Frá 26.-30. júní næstkomandi fer fram Norðulandamót yngri landsliða í Finnlandi. Síðastliðinn fimmtudag atti 18 ára liði stúlkna kappi við eins konar pressulið Sverris Þórs í íþróttahúsi Keflavíkur og höfðu þær nokkuð öruggan sigur eftir jafnan fysta leikhluta. Karfan.is tók hús á liðinu og spjallaði við þjálfara þess, Inga Þór Steinþórsson, sem og tvo leikmenn liðsins, þær Elínu Sóleyju Hrafnkelsdóttur og Thelmu Dís Ágústsdóttur.
U18 ára landslið stúlkna skipa:
Björk Gunnarsdóttir · Njarðvík
Bríet Lilja Sigurðardóttir · Þór Akureyri
Dagbjört Dögg Karlsdóttir · Valur
Dýrfinna Arnardóttir · Haukar
Elfa Falsdóttir · Keflavík
Elín Sóley Hrafnkelsdóttir · Breiðablik
Emelía Ósk Gunnarsdóttir · Keflavík
Katla Rún Garðarsdóttir · Keflavík
Linda Þórdís B. Róbertsdóttir · Tindastóll / Spánn
Sylvía Rún Hálfdanardóttir · Haukar
Thelma Dís Ágústsdóttir · Keflavík
Þóranna Kika Hodge-Carr · Keflavík
Þjálfari: Ingi Þór Steinþórsson
Aðstoðarþjálfari: Bylgja Sverrisdóttir
Leikir liðsins:
26. júní – Ísland v Danmörk kl. 20:15
27. júní – Ísland v Noregur kl. 15:45
28. júní – Ísland v Svíþjóð kl. 20:30
29. júní – Ísland v Eistland kl. 16:00
30. júní – Ísland v Finnland kl. 16:00
Hér verður hægt að fylgjast með tölfræði á meðan leikjum stendur.
Nokkrar myndir af æfingu liðsins úr íþróttahúsinu í Keflavík
Ingi Þór Steinþórsson:
Elín Sóley Hrafnkelsdóttir & Thelma Dís Ágústsdóttir: