Ayesha Curry er eiginkona Stephen Curry og er frúin allt annað en sátt við það að einvígið í ár sé komið í oddaleik. Ayesha fór fram á Twitter í gær eftir leik 6 í Cleveland og sagði að þessu væri öllu handstýrt til að koma að oddaleik.
Curry skaut föstum skotum á NBA deildina á samfélagsmiðlinum eftir að eiginmanni hennar hafði verið hent út úr húsi í gærkvöldi og sagði að hún hefði tapað allri virðingu fyrir deildinni. Tweetið var hinsvegar fjarlægt stuttu síðar en Skjáskot af því náðist hinsvegar.
Frú Curry lét svo fylgja þegar hún hafði eytt þessu tísti að hún hefði átt langan dag og að þetta tíst hafi komið í hita leiksins og að margt hafði gengið á hjá þessari elsku þennan daginn.