Bylgja Sverrisdóttir aðstoðarþjálfari Íslenska U18 landsliðs kvenna var gríðarlega kát með sigurinn gegn Hvít Rússlandi fyrr í dag.
Sigurinn þýddi að Ísland er komið í undanúrslit á evrópumótinu og vildi Bylgja helst þakka ótrúlegri liðsheild sigurinn.
Ísland mætir Grikklandi á morgun (30. júlí) kl 21 á íslenskum tíma í undanúrslitum og segir Bylgja að sitt lið sé klárt í leikinn og liðið muni leggja sig allt fram til að komast í úrslitaleikinn.
Viðtalið má sjá í heild hér að neðan:
Viðtal / Sigríður Inga Viggósdóttir frá Bosníu
Frétt / Ólafur Þór Jónsson