Elvar Már Friðriksson og meistarar Rytas lögðu Jonava í öðrum leik úndanúrslitaeinvígis liðanna í Litháen, 67-82.
Rytas eru því komnir með tvo sigra gegn engum Jonava, en vinna þarf þrjá til þess að tryggja sig í úrslitin.
Á tæpum 22 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Elvar Már 15 stigum, 3 fráköstum og 5 stoðsendingum, en hann var framlagshæstur í liði Rytas í leiknum.