A landslið karla leikur í dag gegn heimamönnum í Austurríki á fjögurra landa móti sem liðið tekur þátt í þessa dagana. Leikurinn hefst klukkan 16 að íslenskum tíma og er hægt að horfa á hann á www.laola1.tv
Leikurinn í dag er 19 leikur liðanna og hefur Ísland sigrað 10 sinnum en síðustu tveir leikir töpuðust, leikir í B deild Evrópukeppninnar 2009.
Eins og í gær eru tveir leikmenn sem verða í borgaralegum klæðum á bekknum í dag. Jón Arnór Stefánson og Hlynur Bæringsson gera það í dag. Tryggvi Snær Hlinason mun því leika sinn fyrsta landsleik í dag.
Hópurinn er því þannig skipaður:
# Nafn · Leikstaða · Fæðingarár · Hæð · Félagslið · Landsleikir
4 Axel Kárason PF 1983 192 cm Svendborg Rabbits (DEN) · 50
5 Ragnar Ágúst Nathanaelsson C 1991 218 cm Þór Þorlákshöfn (ISL) · 36
6 Haukur Helgi Pálsson F 1992 198 cm Rouen Metropole Basket (FRA) · 41
7 Sigurður Gunnar Þorsteinsson C 1988 204 cm Doxa Pefkon (GRE) · 48
10 Ægir Þór Steinarsson PG 1991 182 cm San Pablo Inmobiliaria (ESP) · 33
11 Kristófer Acox PF 1993 196 cm Furman University (USA) · 4
12 Elvar Már Friðriksson PG 1994 182 cm Barry University (USA) · 11
13 Hörður Axel Vilhjálmsson PG 1988 194 cm Rythmos BC (GRE) · 49
14 Logi Gunnarsson SG 1981 192 cm Njarðvik (ISL) · 122
15 Martin Hermannsson PG 1994 194 cm Étoile de Charleville-Mézéres (FRA) · 36
34 Tryggvi Snær Hlinason C 1997 215 cm Þór Akureyri (ISL) · 0
88 Brynjar Þor Björnsson SG 1988 192 cm KR (ISL) · 47
Eins og áður segir verður leikurinn sýndur beint á www.laola1.tv en því miður bjóða Austurríkismennirnir ekki upp á lifandi tölfræði. KKÍ reynir eftir bestu getu að færa fréttir á facebook á meðan á leik stendur.
Frétt af www.kki.is
Mynd/ GEPA