Ragnar Nathanaelson hefur skrifað undir samning við spænska félagið Caceres Patrimonio de la Humanidad.
Félagið spilar í LEB Gold deildinni á Spáni en Ragnar yfirgefur þar með Þór Þorlákshöfn og spilar ekki í Dominos deildinni á komandi tímabili.
Ragnar er 25 ára miðherji sem á að baki landsleiki og er einmitt í landsliðshópnum sem mætir Sviss, Belgíu og Kýpur í undankeppni Eurobasket sem fer af stað í næstu viku.
Ragnar var með 13 stig og 11,9 fráköst að meðaltali í 26 leikjum með Þór Þorlákshöfn á síðasta tímabili og var valinn í lið ársins.
Hann reynir því nú fyrir sér í atvinnumennskunni en hann var á samning hjá Sundsvall Dragons árið 2013 auk þess sem hann reyndi fyrir sér hjá NBA liði Dallas Mavericks fyrr í sumar.
Caceres er í B-deildinni á Spáni og þjálfari liðsins er Nete Bohigas.
Internacional islandés. Ragnar Nathanaelsson @RaggiNaT El techo 2.18 que cierra la plantilla https://t.co/YSSUOf6bhH pic.twitter.com/eSetoCh16v
— CacerEsBasket (@Caceres_Basket) August 25, 2016
Frétt / Ólafur Þór Jónsson