spot_img
HomeFréttirHarlem Globetrotters koma til Íslands - Miðasala opnar á morgun

Harlem Globetrotters koma til Íslands – Miðasala opnar á morgun

Hið heimsfræga sýningar- og skemmtilið Harlem Globetrotters kemur í heimsókn til Íslands þann 17. september í heimsreisu ferð sinni 2023. Liðið mun leika listir sínar í Laugardalshöllinni og verður um sannkallaða fjölskyldu skemmtun að ræða.


Íslendingar eru Harlem Globetrotters góðkunnugir enda hefur liðið glatt tugþúsundir Íslendinga í fjölmörgum heimsóknum liðsins til landsins frá því þeir komu fyrst í heimsókn árið 1982.


Harlem Globetrotters hefur sýnt körfubolta leikni í sinni skemmtilegustu mynd um heim allan í 124 löndum og sex heimsálfum síðan 1926.


Þetta er sannkölluð íþrótta skemmtun ársins fyrir alla aldurshópa. Eftir sýningarleikinn fá allir gestir tækifæri á að fá eiginhandaráritun frá sínum uppáhalds Globetrotter.


Miðasala hefst mánudaginn 22. maí hér, en tekið er fram að aðeins er selt í sæti og því um takmarkað magn miða að ræða.

Fréttir
- Auglýsing -