Nú í hádeginu var árlegt verðlaunahóf KKÍ haldið þar sem að leikmenn og þjálfarar efstu og fyrstu deildar kvenna og karla voru heiðraðir.
Annað árið í röð var Tinna Guðrún Alexandersdóttir leikmaður Hauka valin besti ungi leikmaður Subway deildar kvenna, en Karfan náði tali af henni rétt eftir að hún tók við verðlaununum.