Þessi upphitun er hluti af spá karfan.is fyrir NBA tímabilið sem hefst 25. október.
Hérna er spá Karfan.is fyrir Austurströndina
Áður birt:
11. sæti – New Orleans Pelicans
10. sæti – Minnesota Timberwolves
7. sæti – Oklahoma City Thunder
6. sæti – Portland Trail Blazers
San Antonio Spurs
Heimavöllur: AT&T Center
Þjálfari: Gregg Popovich
Helstu komur: Pau Gasol, Dewayne Dedmon.
Helstu brottfarir: Tim Duncan, Boris Diaw, David West.
Nýtt tímabil, annað 50 sigra tímabil hjá San Antonio Spurs. Margir reka kannski upp stór augu við að sjá þeim spáð 3. sæti í vestrinu en ekki ofar. Það er samt ástæða fyrir því, San Antonio eru með fremur aldna leikmenn að spila lykilhlutverk og þurfa einfaldlega ekki að spila allt tímabilið á 100% krafti, þeirra augu eru á úrslitakeppninni. Ennfremur þá töpuðu þeir góðum leikmönnum og fengu eiginlega bara Pau Gasol í staðinn. Pau er ennþá elítu sóknarmaður en að sjá hann í vörninni verður stuðningsmönnum Spurs oft erfitt. Kannski er ég að teygja mig of langt og Spurs verða frábærir. Ég held þeir verði góðir en þetta verður niðurstaðan.
Styrkleikar liðsins eru einfaldir, frábært byrjunarlið, frábær þjálfari, frábær stórstjarna í Kawhi Leonard og LaMarcus Aldridge er virkilega góður næstbesti leikmaður. Mikil reynsla í liðinu og fullt lið af leikmönnum sem kunna ekki að tapa. Verða bæði góðir í vörn og sókn. Veikleikarnir eru aldur lykilmanna, breiddin hefur líka oft verið betri og þess vegna munu lykilmenn þurfa að spila fleiri mínútur en oft áður.
Líklegt byrjunarlið í fyrsta leik:
PG – Tony Parker
SG – Kyle Anderson
SF – Kawhi Leonard
PF – LaMarcus Aldridge
C – Pau Gasol
Gamlinginn: Manu Ginobili (39) er enn að, forréttindi að fá að fylgjast með þessum leikmanni.
Fylgstu með: Kawhi Leonard. Frábær leikmaður sem heldur áfram að bæta sig, hvað sýnir hann okkur næst?
Spá: 55-27 – 3. Sæti.