Bakvörðurinn Valur Orri Valsson hefur samið við Grindavík fyrir komandi tímabil í Subway deild karla.
Valur Orri kemur til Grindavíkur frá Keflavík þar sem hann hefur leikið síðastliðin ár, en þrátt fyrir að vera aðeins 28 ára gamall hóf hann meistaraflokksferil sinn með Njarðvík árið 2009. Á síðasta tímabili skilaði hann 6 stigum, 2 fráköstum og 4 stoðsendingum að meðaltali í leik með Keflavík.