Dagur Kár Jónsson hefur skrifað undir samning við Grindvíkinga um að leika með félaginu til loka mótsins í ár. Kvittað var undir samninga nú rétt áðan þess efnis. Dagur sleit barnkörfuboltaskóm sínum í Stjörnunni eins og flestir vita en hefur verið í New York borg síðastliði ár þar sem hann stundaði nám við St Francis háskólann. Áður en Dagur hélt til St Francis höfðu hann og Justin Shouse myndað eitt sterkasta bakvarðapar deildarinnar. Grindvíkingar hrósa happi yfir þessum feng enda mikil hvalreki á fjörur þeirra. "Dagur er þekkt stærð í þessari deild, gríðarlega sterkur leikstjórnandi sem á eftir að styrkja góðan hóp okkar." sagði Gauti Dagbjartsson í samtali við Karfan.is við tilefnið.