spot_img
HomeBónus deildinBónus deild karlaHalldór Garðar semur við Keflavík til ársins 2025

Halldór Garðar semur við Keflavík til ársins 2025

Bakvörðurinn Halldór Garðar Hermannsson hefur framlengt samningi sínum við lið Keflavíkur til næstu tveggja ára. Staðfestir félagið þetta á samfélagsmiðlum í gærkvöldi.

Halldór Garðar er að upplagi úr Þorlákshöfn, þar sem hann var leikmaður liðsins í eina Íslandsmeistaratitil Þórsara árið 2021. Eftir það tímabil skipti hann yfir til Keflavíkur, en þar var hann einn af mikilvægari leikmönnum liðsins á síðasta tímabili með 11 stig, 3 fráköst og 2 stoðsendingar að meðaltali í leik.

Fréttir
- Auglýsing -