Samkvæmt heimildum hefur Arnar Guðjónsson aðstoðar landsliðsþjáflari og þjálfari liðs Svendborg Rabbits í Danmörku ráðið til sín Stefan Bonneau fyrrum leikmann Njarðvíkinga. Ekki hefur náðst í Arnar til að staðfesta þessar fregnir hinsvegar. Allir þekkja sögu Stefan hér á landi sem í gær fékk ekki framlengingu á samningi sínum í Njarðvíkinni þar sem þeir grænklæddu ætla sér að leita af hærri manni til starfa.
Ef rétt reynist þá hefur Stefan ekki verið samningslaus í meira en sólarhring en kappinn hefur verið að ná sér hægt og bítandi af sinni seinni hásinarslitum.