Guðmundur Magnússon (úr Magnússon klaninu) kemur til með að stýra KR í kvöld gegn liði Snæfell. Ástæða þess er auðvitað sú að Finnur Freyr Stefánsson var í gær dæmdur í eins leiks bann eftir háttsemi sína í bikarleik gegn Fjölni. Guðmund þarf vart að kynna en hann spilaði með liði KR á sínum tíma við góðan orðstýr og hvefur verið viðloðandi liðið á einn eða annan hátt síðan meistaraflokks skór hans fóru á hilluna. Guðmundur lagði hinsvegar ekki alla skó sína á hilluna því hann spilar með liði KR-b (Bumbunar)
Leikur KR og Snæfell hefst í kvöld kl 19:15 í DHL höllinni.