Blake Griffin framherji þeirra LA Clippers mun þurfa að fara í aðgerð á hægra hné á næstunni samkvæmt miðlum vestra hafs. Griffin sem missti af 47 leikjum á síðasta tímabili vegna meiðsla á hendi mun líkast til koma til með að missa af 4-6 vikum vegna þessarar hné meiðsla sinna. Þessi 27 ára leikmaður er að skila að meðaltali 21 stigi og 9 fráköstum á leik fyrir Clippers og því þessi missir fyrir þá stór biti að tyggja. Clippers hóf tímabilið af krafti og höfðu sigrað 14 af fyrstu 16 leikjum sínum en hafa síðan þá dalað og aðeins unnið 6 af síðustu 12 leikjum.