Hér fyrir neðan eru nokkur af þeim atriðum sem Körfunni hafa borist til eyrna á síðustu dögum er varða leikmenn, þjálfara og félög á Íslandi. Tekið skal fram að hér er um að ræða óstaðfestar fregnir og því ber að taka þeim sem slíkum.
- Talið er næsta öruggt að Ægir Þór Steinarsson leikmaður HLA Alicante á Spáni sé búinn að semja við Stjörnuna fyrir næsta tímabil í Subway deild karla
- Þá er einnig sá orðrómur í gangi að Grindvíkingar hafi boðið Ægir samning sem myndi gera hann að lang launahæsta leikmanni deildarinnar á komandi tímabili
- Þá er talið að Hörður Axel Vilhjálmsson og Haukur Helgi Pálsson, sem eins og Ægir eru báðir fyrrum leikmenn Fjölnis, eigi báðir í viðræðum við Sjörnuna og því er allt eins líklegt að á næsta tímabili verði Grafarvogs endurfundir í Garðabænum
- Fari svo að Hörður fari ekki til Stjörnunnar hefur Grindavík einnig verið nefndur sem líklegur áfangastaður fyrir hann
- Þá hefur það verið í umræðunni að Haukur Helgi gæti gengið til liðs við Íslandsmeistara Vals
- Þá er Stjarnan sögð á eftir Dagnýju Lísu Davíðsdóttur leikmanni Fjölnis í Subway deild kvenna
- Samkvæmt orðrómi er Tindastóll við það að framlengja samningi sínum við Adomas Drungilas út næsta tímabil
- Þá segir orðrómur að Arnaldur Grímsson leikmaður Selfoss og Sigvaldi Eggertsson úr ÍR séu báðir með góð tilboð á borðinu frá KR fyrir komandi tímabıl
- Enn frekar herma fregnir að í viðræðum við leikmenn er KR ekki búið að nefna hver verður þjálfari liðsins, en Jakob Sigurðarson, Hörður Unnsteinsson og Hjalti Vilhjálmsson hafa verið nefndir við stöðuna samkvæmt orðrómi
- Þá flýgur sú saga að Þorvaldur Orri Árnason leiti sér að liði erlendis fyrir næsta tímabil, en lítist honum ekki á það er hann talinn líklegur til þess að semja aftur við KR
- Rebekka Rut Hjálmarsdóttir leikmaður nýliða ÍR á nýafstöðnu tímabili í Subway deild kvenna er ekki talin líkleg til þess að taka annað tímabil með þeim, en líklegir áfangastaðir eru taldir Fjölnir, Breiðablik eða KR
- Annar leikmaður ÍR Margrét Blöndal er sögð líkleg til þess að halda heim í KR fyrir komandi tímabil
- Hilmir Arnarsson leikmaður Fjölnis í fyrstu deildinni er talinn líklegur til þess að ganga til liðs við Hauka fyrir komandi tímabil
- Haukar eru einnig sagðir vera á eftir leikmanni ÍR Sigvalda Eggertssyni
- Nokkrar breytingar eru taldar yfirvofandi hjá Stjörnunni og talið er að einhverjir leikmenn gætu viljað frá félaginu, þar með taldir eru Júlíus Orri Ágústsson og Kristján Fannar Ingólfsson
- Samkvæmt orðrómi hefur Valur Orri Valsson sagt upp samningi sínum í Keflavík, en félagið er þó talið vilja halda í hann, fari svo að hann yfirgefi Keflavík er talið að hann endi í Grindavík eða Njarðvík
- Adama Darboe leikmaður Stjörnunnar er sagður hafa átt í viðræðum við KR fyrir komandi tímabil
- Þá er ekki talið líklegt að Dominykas Milka muni leika áfram fyrir Keflavík, en fari svo að hann yfirgefi félagið hafa bæði Álftanes, Njarðvík, KR og Höttur verið nefnd sem mögulegir áfangastaðir
- Þá er talið næsta öruggt að Hallgrímur Brynjólfsson muni verða arftaki Kristjönu Jónsdóttur sem næsti þjálfari Fjölnis í Subway deild kvenna
- Hákon Örn Hjálmarsson leikmaður ÍR er talinn líklegur til þess að yfirgefa félagið fyrir komandi tímabil, en hann er sagður vera með góð tilboð frá Hetti og Þór Þorlákshöfn
- Þá er Collin Pryor einnig talinn líklegur til þess að yfirgefa ÍR og að hann gangi annaðhvort til liðs við Álftanes eða Breiðablik fyrir komandi tímabil
- Leikmaður Vals Símon Tómasson er talinn líklegur til þess að yfirgefa Íslandsmeistarana fyrir komandi tímabil og eru Ármann, ÍA, Höttur eða Álftanes taldir líklegir áfangastaðir
- Fyrrum leikmaður Grindavíkur og Njarðvíkur Terrel Vinson er sagður líklegur til þess að koma aftur til Íslands fyrir komandi tímabil, en hann lék síðast í Pro A deildinni í Þýskalandi. Þó er ekki talið að hann muni ganga til liðs við sín gömlu félög, en lið sem sögð eru hafa verið í sambandi við hann eru Þróttur Vogum, Hamar og Skallagrímur
Orðið á götunni er einungis til gamans og ef fólk hefur ábendingar um slúður skal hafa samband á [email protected]