Valsarar mættu í Borgarnes til að sækja sigur gegn Skallagrím sem tapaði í bikarúrslitum gegn Keflavík síðasta laugardag. Valskonur höfðu unnið tvo af síðustu þremur leikjum og verið að finna taktinn betur á árinu 2017.
Valur var mun sterkari í byrjun og komst yfir strax á upphafsmínútum. Skallagrímur hélt í við þær en varnarleikur beggja liða var í aðalhlutverki í fyrri hálfleik. Staðan var 30-31 í hálfleik og von var á háspennuleik í seinni hálfleik.
Um miðbik þriðja leikhluta stakk Valur svo af og komst í 12 stiga foyrstu, þá var Manuel Rodriquez nóg boðið og tók leikhlé. Skallagrímur náði þá að minnka muninn en komst aldrei nægilega nálægt Val sem hafði á endanum átta stiga sigri.
Mia Lloyd átti magnaðan leik í kvöld, endaði með 28 stig og 24 fráköst en Dagbjört Dögg var einnig frábær í kvöld. Sigrún Sjöfn var atkvæðamest hjá Skallagrím með 18 stig en borgnesingar spiluðu einungis á sex leikmönnum í kvöld þar sem Guðrún Ósk meiddist í bikarúrslitaleiknum og lék ekki í kvöld.
Valur er nú með 18 stig í fimmta sæti Dominos deildar kvenna, sex stigum á eftir Stjörnunni sem er í fjórða sæti. Skallagrímur heldur enn toppsætinu en Snæfell jafnaði liðið að stigum en vesturlandsliðin mætast í Borgarnesi á laugardaginn. Skallagrímur hafði unnið níu leiki í röð í deildinni fyrir þennan og náðu Valsarar því að stöðva sigurgönguna í kvöld.
Skallagrímur-Valur 63-71 (15-17, 15-14, 15-22, 18-18)
Skallagrímur: Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 18/11 fráköst, Tavelyn Tillman 16/8 fráköst/5 sto?sendingar, Kristrún Sigurjónsdóttir 12, Jóhanna Björk Sveinsdóttir 10/9 fráköst, Fanney Lind Thomas 5/5 fráköst, Ragnhei?ur Benónísdóttir 2/5 fráköst, Arna Hrönn Ámundadóttir 0, Sigurbjörg Rós Sigur?ardóttir 0, Gunnfrí?ur Ólafsdóttir 0, Gu?rún Ósk Ámundadóttir 0, Gu?rún Helga Tryggvadóttir 0.
Valur: Mia Loyd 28/24 fráköst/5 sto?sendingar, Dagbjört Dögg Karlsdóttir 10/9 fráköst, Gu?björg Sverrisdóttir 9, Berg?óra Holton Tómasdóttir 8/6 fráköst, Dagbjört Samúelsdóttir 6, Hallveig Jónsdóttir 6, Elín Sóley Hrafnkelsdóttir 4, Helga Þórsdóttir 0, Hrafnhildur Magnúsdóttir 0, Nína Jenný Kristjánsdóttir 0, Elfa Falsdottir 0.
Viðtöl við þjálfara eftir leik:
Viðtöl / Snæþór Bjarki Jónsson