Davidson háskólinn er úr leik í úrslitum Atlantic 10 riðlinum eftir slæmt 84:60 tap gegn rótsterku liði Rhode Island nú rétt áðan. Rhode Island skólinn tók taumana á leiknum strax í upphafi og létu þá aldrei af hendi út leikinn. Þeir leiddu með 12 stigum í hálfleik 46:34 og lítið sem benti til þess að Davidson ættu möguleika í þessum leik.
Davidson náði muninum mest niður í 10 stig í seinni hálfleik en komust ekki lengra að þessu sinni. Okkar maður Jón Axel Guðmundsson skoraði 9 stig tók 2 fráköst og gaf 3 stoðsendingar í leiknum. Ekki er líklegt að Davidson nái í sjálfa lokakeppni Háskólaboltans í ár en ekki er hinsvegar loku fyrir því skotið að þeim verði boðið í einhver af öðrum mótum eftir þessa keppni eins og t.d NIT mótið sem er 32 liða mót fyrir sterkustu liðin sem ekki komast í lokakeppnina.
Árið hinsvegar búið að vera viðburðaríkt hjá Jóni Axel. Á sínu fyrsta ári er kappinn búin að koma sér kyrfilega fyrir í byrjunarliði Davidson sem er í raun óheyrt og góð fyrirheit fyrir framhaldið hjá honum á næstu þremur árum.