Kristinn Pálsson og Aris Leeuwarden máttu þola tap fyrir Limburg í kvöld í BNXT Gold deildinni í Hollandi/Belgíu, 96-77.
Á 24 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Kristinn 11 stigum, 3 fráköstum og 3 stoðsendingum.
Það hefur lítið gengir hjá Aris síðan að deildinni var getuskipt í tvennt nú í mars, en þeir eru sem stendur í tíunda og neðsta sæti deildarinnar enn án sigurs eftir fyrstu sjö leikina.