Hamar tekur á móti Skallagrími í þriðja leik úrslitaeinvígis fyrstu deildar karla í kvöld kl. 19:15 í Hveragerði.
Fyrstu tveimur leikjum einvígis liðanna skiptu liðin á milli sín, þar sem Hamar vann fyrsta leik í Hveragerði, en Skallagrímur jafnaði metin í leik tvö í Borgarnesi.
Vinna þarf þrjá leiki til þess að tryggja sér sæti í Subway deildinni.

Leikur dagsins
Úrslitaeinvígi – Fyrsta deild karla
Hamar Skallagrímur – kl. 19:15